Fara í frí til að búa til barn?

Verða þau fjögur á næsta ári?
Verða þau fjögur á næsta ári? AFP

Harry Bretaprins og Meghan hertogaynja eru sögð vilja drífa sig í að eignast annað barn. Langt er um liðið síðan Harry gaf það út að hann vildi eignast tvö börn með eiginkonu sinni og það virðist væntanlegt á næsta ári. 

Samkvæmt heimildarmanni Us Weekly eru þau hjónin sögð vilja verða ólétt fyrir lok þessa árs. Tæpar sex vikur eru eftir af árinu og hefur konungsfjölskyldan gefið það út að Harry og Meghan muni vera í leyfi frá konungslegum skyldum næstu vikurnar. 

Harry og Meghan eignuðust sitt fyrsta barn, Archie, í maí á þessu ári. Harry ræddi við tveggja barna móður á konunglegum viðburði á dögunum og sagði hún hann hafa verið mjög áhugasaman um hvernig fjölskyldulífið gengi með tvö börn. Það er því aldrei að vita hvort Harry og Meghan ætli að nýta fríið á næstu vikum til þess að búa til lítið systkini handa Archie.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert