Leikkonan Felicity Jones á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum Charles Guard. Jones og Guard gengu í hjónaband fyrir rúmu ári.
Jones fór með hlutverk í kvikmyndinni The Theory of Everything og hlaut mikið lof fyrir. Hún var tilnefnd til Óskarsverðlauna, BAFTA-verðlauna og Golden Globe-verðlauna fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni auk fleiri tilnefninga. Hún fór einnig með hlutverk í The Amazing Spider-Man árið 2014 þar sem hún lék hina illu Feliciu Hardy.
Leikkonan breska og Guard höfðu verið saman í rúmlega þrjú ár áður en þau gengu í það heilaga og nú hafa þau tekið enn eitt skrefið saman og eiga von á sínu fyrsta barni.
Jones var mætt á frumsýningu kvikmyndar sinnar Aeronauts í New York í gær og glöggir aðdáendur tóku eftir því að Jones ber barn undir belti.