Kunni ekki að ala upp dæturnar eftir skilnaðinn

Garth Brooks kunni ekki á stelpur.
Garth Brooks kunni ekki á stelpur. AFP

Kántrísöngvarinn Garth Brooks segir að hann hafi ekkert kunnað að ala upp dætur sínar þrjár eftir að hann skildi við eiginkonu sína. 

Brooks var vinsæll kántrísöngvari í kringum aldamótin en tók sér hlé frá tónlistinni þegar hann skildi við eiginkonu sína til 14 ára. Hann flutti frá kántríborginni Nashville í Tennessee aftur til Okhlahoma til að ala upp dætur sínar.

Brooks giftist barnsmóður sinni og fyrstu eiginkonu árið 1986. Þau eignuðust saman dæturnar Taylor, August og Allie, sem voru 8, 6 og 4 ára þegar foreldrar þeirra skildu árið 2001. 

„Ég kvaddi tónlistina, skildi, flutti aftur til Oklahoma og kvaddi Nashville. Ég bjó allt í einu með þremur ókunnugum konum sem ég þekkti ekki. Þær voru 8, 6 og 5 ára og ég var að fara á hraðnámskeið í konum. Og besta vinkona mín kom,“ sagði Brooks í viðtali

Stuttu eftir skilnaðinn giftist hann Trishu Yearwood. Hún hjálpaði Brooks í kjölfar skilnaðarins og að lokum felldu þau hugi saman. 

„Það var mjög gott. Hún hjálpaði mér mikið. Hún átti ekki börn. Þannig að þetta var eiginlega eins og blindur leiðir blindan. Ég óska þess ekki fyrir neinn að skilja, en þrjú börn og þrír foreldrar virkaði mjög vel, sérstaklega þar sem stelpurnar voru mjög virkar. Þær voru allar í fótbolta, langhlaupi og hafnabolta. Ekkert barnanna keppti í íþróttinni sinni án þess að minnsta kosti eitt foreldri hafi verið á hliðarlínunni. Ég elska tónlist, í alvöru. En það er ekkert eins og að elska börnin sín,“ sagði Brooks. 

Garth Brooks og eiginkona hans Trisha Yearwood ólu upp dætur …
Garth Brooks og eiginkona hans Trisha Yearwood ólu upp dætur hans í sameiningu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert