Eignaðist tíunda barnið á 20 árum

Keke Wyatt eignaðist sitt 10. barn á dögunum.
Keke Wyatt eignaðist sitt 10. barn á dögunum. skjáskot/Instagram

Tónlistarkonan Keke Wyatt eignaðist sitt tíunda barn nú á dögunum. Wyatt er aðeins 37 ára og eru 20 ár á milli elsta og yngsta barnsins. 

Wyatt eignaðist tíunda barnið með eiginmanni sínum Zackariah Darring en þetta er þeirra fyrsta barn saman. Hún á sex börn úr fyrsta hjónabandi sínu með Rahman Morton, en þau voru gift á árunum 2000 og 2009. Árið 2010 giftist hún svo Michael Ford og eignuðust þau þrjú börn saman. 

Wyatt og Ford skildu árið 2017 þegar hún var gengin 8 mánuði á leið með fjórða barn þeirra saman. Wyatt og Darring kynntust svo árið 2018 og giftu sig síðla það ár. Í október 2019 tilkynnti hún það svo á Instagram að hún ætti von á tíunda barninu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert