Hresstu barnaherbergið við fyrir litla peninga

Hér má sjá fallegt rautt og bleikt sængurverasett sem gerir …
Hér má sjá fallegt rautt og bleikt sængurverasett sem gerir rúmið miklu notalegra. Ljósmynd/IKEA

Það langar flesta að hafa vistlegt í kringum sig, ekki bara fullorðna heldur líka börn. Hægt er að hressa verulega upp á barnaherbergið með því að kaupa litrík sængurföt, mottur og púða sem gera herbergið vistlegra án þess að það kosti of mikla peninga. Það þarf ekki alltaf að henda öllu út og kaupa ný húsgögn til að búa til meiri stemningu. 

Á dögunum komu tvær nýjar línur í IKEA sem heita RÖRANDE og GRACIÖS. Þessar tvær vefnaðarvörulínur skarta litríkum og fallegum sængurverasettum, handklæðum og teppum úr 100% bómull sem er af sjálfbærum uppruna. Allar vörurnar eru hannaðar með öryggi og þægindi barna að leiðarljósi.

Hér má sjá hvað púðar geta gert herbergið fallegt.
Hér má sjá hvað púðar geta gert herbergið fallegt. Ljósmynd/IKEA
Grænn krókudíll, appelsína og bílar koma vel út í þessu …
Grænn krókudíll, appelsína og bílar koma vel út í þessu sængurverasetti. Ljósmynd/IKEA
Unglingaherbergið verður skemmtilegra með litríkum sængurverum.
Unglingaherbergið verður skemmtilegra með litríkum sængurverum. Ljósmynd/IKEA
Sængurverasett og litrík motta geta gjörbreytt herberginu.
Sængurverasett og litrík motta geta gjörbreytt herberginu. Ljósmynd/IKEA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert