Katy Perry eins og fíll á meðgöngunni

Tónlistarkonan Katy Perry tók þátt í samsöng Disney um helgina þar sem tónlistarfólk tók höndum saman og söng þekkt barnalög í beinu streymi. Eins og við flesta viðburði þessa dagana var tónlistarfólkið heima hjá sér. 

Perry tók samsöngin alla leið og klæddi sig upp eins og fílamamman Frú Jumbo en hún söng einmitt lagið Baby Mine úr Disney-kvikmyndinni Dumbo frá árinu 1941. Á meðan hún söng ruggaði hún sér fram og aftur í ruggustól og var með hundinn sinn Nugget í fanginu sem var klæddur eins og fíllinn Dumbo.

Samsöngurinn var skipulagður af Disney til þess að safna peningum fyrir góðgerðarsamtökin Feeding America. 

Perry og unnusti hennar, leikarinn Orlando Bloom, eiga von á sínu fyrsta barni í sumar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert