Adrian Michalek er tveggja ára breskur strákur. Hans besti vinur er tíkin Maddie og eru þau óaðskiljanleg. Hverja helgi fara þau saman í langar gönguferðir og skoða umhverfið. Foreldrar Adrians stofnuðu Instagram reikning sem fangar þessa fallegu vináttu barns og hunds.
„Maddie er eins og litli skugginn hans. Hún eltir hann út um allt og þau leika saman frá morgni til kvölds og enda daginn saman í kúri uppi í sófa,“ segir móðir Adrians í viðtali við Daily Mail.
„Hann fer aldrei að sofa án þess að gefa henni koss. Þau eru eins og systkin, eða því sem næst. Við vildum fanga þessar fallegu stundir þeirra saman og leyfa öðrum að vera vitni að þessari þroskasögu stráks og hunds.“
View this post on InstagramA post shared by Little Chap & Pup (@littlechapandpup) on Oct 17, 2019 at 6:52am PDT
View this post on InstagramA post shared by Little Chap & Pup (@littlechapandpup) on Aug 15, 2019 at 12:03pm PDT
View this post on InstagramA post shared by Little Chap & Pup (@littlechapandpup) on Jun 10, 2019 at 11:15am PDT