„Ég hef bara fitnað“

Coleen Rooney.
Coleen Rooney. AFP

Fótboltafrúin Coleen Rooney, eiginkona Wayne Rooney, greindi frá því á Twitter á dögunum að hún væri ekki barnshafandi. Coleen Rooney er í fríi og sagði áhugasömum að hún hefði fitnað. 

Rooney-hjónin eru í fríi á Barbados ásamt fjórum sonum sínum og fjölskyldu. Margir götuljósmyndarar hafa verið á sömu slóðum í von um að ná myndum af fjölskyldunni eins og Coleen Rooney greindi frá í tístinu. Sögusagnir um að mögulega væri von á fimmta barninu hófust þegar Rooney var mynduð í sundbol en á vef Daily Mail er hún sögð vön að klæðast dýrum bikiníum. 

„Skemmtum okkur frábærlega á uppáhaldseyjunni okkar, svo heppin og þakklát fyrir að vera hér,“ tísti Coleen Rooney og birti mynd af sér með mömmu sinni. „Margir götuljósmyndarar á ströndinni eins og alltaf (það kemur ekki í veg fyrir að við skemmtum okkur), hef séð slæmar myndir þarna úti ... En fyrir þá sem eru að spyrja þá er ég ekki ólétt. Ég hef bara fitnað,“ tísti fótboltafrúin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert