Bjarni skreytti hestaköku í ár

Það var hestaþema hjá Bjarna i ár.
Það var hestaþema hjá Bjarna i ár. Skjáskot/Instagram

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra birti mynd af afmælisköku með hestum á á Instagram. Bjarni er þekktur fyrir að skreyta afmæliskökur handa dóttur sinni sem á afmæli í lok september. 

Hann hefur haft það að reglu að leggja sitt af mörkum þegar kemur að afmæliskökunni. Hann skreytir þá listilega vel kökur með sykurmassa. Í gegnum tíðina hefur hann fengið góðar leiðbeiningar hjá kökufyrirtæki.  

„Afmæliskaka,“ skrifaði Bjarni einfaldlega þegar hann birti mynd af hestakökunni.

View this post on Instagram

Afmæliskaka.

A post shared by Bjarni Benediktsson (@bjarnibenediktsson) on Oct 5, 2020 at 4:54am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert