Með meira samviskubit í heimsfaraldrinum

Eva Mendes.
Eva Mendes. mbl.is/Alexander Tamargo

Það kannast eflaust margir foreldrar við það að vera með endalaust samviskubit yfir að geta ekki leyft börnum sínum að hitta alla vini sína, ferðast og upplifa eitthvað nýtt í heimsfaraldrinum. Leikkonan Eva Mendes virðist í það minnsta finna vel fyrir því. 

Mendes birti nýlega mynd á instagramsíðu sinni þar sem hún sagði frá því að dóttir hennar hefði endilega viljað klippa mynd af plötuumslagi. „Ég dó hljóðlaust inni í mér en sagði strax já. Mammviskubit í heimsfaraldri,“ skrifaði Mendes. 

Mendes á tvær dætur, þær Esmeröldu sex ára og Amödu fjögurra ára, með eiginmanni sínum Ryan Gosling. Líkt og fleiri hafa þau að mestu leyti haldið sig heima með börnin í faraldrinum. 

Mendes birti einnig mynd af kinnalit í stiftformi sem dóttir hennar laskaði með því að stinga plokkara ofan í hann. 

View this post on Instagram

A post shared by Eva Mendes (@evamendes)

View this post on Instagram

A post shared by Eva Mendes (@evamendes)



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert