Fanney Ingvars og Teitur gáfu syninum nafn

Fanney og Teitur gáfu syni sínum nafn um helgina.
Fanney og Teitur gáfu syni sínum nafn um helgina. Skjáskot/Instagram

Fegurðardrottningin fyrrverandi Fanney Ingvarsdóttir og unnusti hennar Teitur Páll Reynisson gáfu syni sínum nafn yfir jólin. Drengurinn litli fékk nafnið Reynir Alex. 

Reynir Alex litli kom í heiminn 23. október síðastliðinn og fagnaði tveggja mánaða afmæli á Þorláksmessu. Hann er annað barn foreldra sinna en fyrir áttu þau dótturina Kolbrúnu Önnu sem er þriggja ára.

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert