Bleikt allsráðandi í öðru steypiboði Alexöndru

Alexandra Helga fékk steypiboð númer tvö í vikunni.
Alexandra Helga fékk steypiboð númer tvö í vikunni. Skjáskot/Instagram

Hjónin Alexandra Helga Ívarsdóttir og Gylfi Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, eiga von á stelpu. Alexandra sem býr á Englandi ásamt eiginmanni sínum er stödd á Íslandi þar sem hún fær fleiri en bara eitt steypiboð. 

Alexandra fagnaði meðgöngunni með vinkonum á sunnudaginn. Annað steypiboð Alexöndru fór fram á miðvikudagskvöldið. Skreytingarnar voru glæsilegar og áberandi bleikar. Á borðinu mátti sjá bleikan pakka, bleikt áfengislaust freyðivín og bleikar blöðrur: „Þetta er stelpa,“ stóð á kökubakka. 

„Hversu yndislegar vinkonur á ég?“ skrifaði Alexandra meðal annars þegar hún endurbirti myndir úr veislunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert