Hætt að eignast börn og fékk sér ný brjóst

Jesse James Decker.
Jesse James Decker. skjáskot/Instagram

Söngkonunni Jesse James Decker líður eins og nýrri konu eftir að hún fékk sér „ný brjóst“. Söngkonan sýndi nýju brjóstin á Instagram í vikunni og sagði að hún og eiginmaður hennar, Eric Decker hefðu ákveðið að eignast ekki fleiri börn. 

„Ég fékk mér ný brjóst. Eftir að hafa loksins ákveðið að eignast ekki fleiri börn var ég tilbúin til að gera þetta af alvöru eða fara heim,“ skrifaði Decker á Instagram. 

Decker-hjónin eiga þrjú börn; Vivianne sem er 7 ára, Eric sem er 5 ára og Forrest 4 ára. 

„Ég fór í brjóstaminnkun og í lyftingu fyrir nokkrum árum þegar þau héngu niður að nafla, en þar sem ég er með teygjanlega húð og var ekki ánægð með stærðina ákvað ég að gera það. Þau voru svo stór og flott áður en ég eignaðist börnin, þannig að ég vildi fá þau aftur,“ sagði Decker. 

Decker sagði að sér liði ótrúlega vel og hún væri mun öruggari með sjálfa sig. Hún sagðist þó skilja að lýtaaðgerðir væru ekki fyrir alla en hvatti alla til að gera það sem yki sjálfstraust þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert