Á von á þriðja barninu 42 ára

Jennifer Love Hewitt.
Jennifer Love Hewitt. AFP

Leikkonan Jennifer Love Hewitt á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum, Brian Hallisey. Hewitt segir óléttuna hafa komið ánægjulega á óvart. Fyrir eiga hjónin soninn Atticus James sem er fimm ára og dótturina Autumn James sjö ára. 

Hewitt, sem varð 42 ára fyrr á árinu, sagði í viðtali við People að þau hefðu alltaf verið opin fyrir þriðja barninu. Hún hélt hins vegar að það myndi ekki gerast núna enda hefði síðasta ár verið flókið. „Mér finnst eins og okkur hafi hingað til gengið vel að ala upp tvö yndisleg börn sem verða frábærar fyrirmyndir. Það er svo ljúf, falleg og óvænt gjöf að fá að gera þetta allt aftur með annarri lítilli manneskju.“

Börnin sem hjónin eiga fyrir eru svo spennt fyrir litla systkini sínu að sonurinn giskaði á að mamma sín væri ólétt áður en hún komst að því sjálf. Eitt kvöldið sá sonur hennar auglýsingu fyrir þungunarpróf og sagði mömmu sinni að panta ef það skyldi nú vera barn í maganum. „Hversu dónalegt! Ég var að borða stóran kvöldmat. Hvað er hann að tala um? Ég hætti ekki að hugsa um það og þau voru búin að biðja um systkini af og til í heilt ár. Við lokuðum ekki á hugmyndina, þetta var bara ekki neitt sem við vorum mikið að hugsa um.“

Hewitt tók að lokum þungunarpróf sem reyndist jákvætt. „Vá, það er mjög áhugavert að hann setti þetta út í alheiminn og þarna var það. Ég hafði notað Clear Blue-próf áður og þetta var bara mjög fyndið að hann sá þessa auglýsingu og sagði þetta upphátt,“ sagði hún um hinn fimm ára gamla Atticus.

Hewitt segist elska að vera ólétt en segir að barn númer þrjú verði líklega hennar síðasta. „Ég held að ég gæti ekki gert þetta aftur. Ég held að fimm sé frábær tala.“

Jennifer Love Hewitt á tvö börn.
Jennifer Love Hewitt á tvö börn. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert