Katrín hertogaynja af Cambridge stóð við loforð sem hún gaf fimm ára stúlku sem vildi hitta „alvöruprinsessu“. Litla stelpan, Mila Sneddon, sem berst við hvítblæði, óskaði þess heitt að fá að hitta alvöruprinsessu í bleikum kjól. Hún fékk ósk sína uppfyllta á dögunum þegar Kata bauð Milu í heimsókn „að leika prinsessur“ á heimili hennar í Edinborg.
Bleiki silkikjóllinn sem Katrín hertogaynja klæðist er frá ME+EM og er hægt að fá hann heimsendan fyrir tæpar 100 þúsund krónur. Pastelbleiku hælarnir eru frá Emmy London og nefnast „Rebecca Makeup“.
Ljósmynd af Milu Sneddon komst í fréttirnar í upphafi faraldurs þegar hún sést kyssa pabba sinn í gegnum glugga á heimili þeirra. Af ótta við að smita litlu veiku dóttur sína ákvað faðir Milu að halda sig að heiman á meðan samkomutakmarkanir voru í Bretlandi.
Myndin er afar táknræn fyrir þá erfiðleika sem margar fjölskyldur urðu að takast á við í faraldrinum. Ljósmyndina er að finna í kaffiboðsbók sem Katrín hertogaynja gaf út á dögunum.