Á erfitt með að segja nei við börnin

Kim Kardashian á erfitt með að segja nei við börnin …
Kim Kardashian á erfitt með að segja nei við börnin sín. AFP

Athafnakonan Kim Kardashian viðurkennir að hún eigi erfitt með að segja nei við börnin sín. Hún ætlar hins vegar að fara að vinna í því að vera strangari og segja nei.

Kardashian var í foreldraspjalli hjá tímaritinu Parents. „Þegar börnin mín vilja eitthvað (yfirleitt nammi), þá horfa þau beint í augun á mér og horfa bara í gegnum mig. Ég læt yfirleitt undan og gef þeim það sem þau vilja,“ sagði Kardashian. 

Kardashian á fjögur börn, North, Saint, Chicago og Psalm, með fyrrverandi eiginmanni sínum Kanye West. Hún viðurkennir að það sé mikill pakki að eiga fjögur börn en það sé líka gefandi.

„Þeim kemur svo vel saman og elska hvert annað svo mikið. Það minnir mig á æsku mína með Kourtney, Khloé og Rob. Það er eitthvað svo einstakt að eiga stóra fjölskyldu og ég er glöð að börnin mín fái að upplifa það eins og ég,“ sagði Kardashian. Hún segir styrkleika sinn sem foreldri liggja í því að hún er róleg. 

„Ég verð ekki mjög stressuð eða óþolinmóð, sem ég held án efa að sé minn styrkleiki þegar þú átt þrjú börn undir fimm ára aldri sem hlaupa um,“ sagði Kardashian.

Kim Kardashian á fjögur börn með Kanye West.
Kim Kardashian á fjögur börn með Kanye West. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert