Börnin fóru ekki í skóla í 18 mánuði

Synir söngkonunnar Jessicu Simpsons.
Synir söngkonunnar Jessicu Simpsons. Skjáskot/Instagram

Synir bandarísku söngkonunnar Jessicu Simpson eru loksins á leiðinni í skólann eftir 18 mánaða fjarveru vegna heimsfaraldursins. Simpson greindi frá þessu á dögunum á Instagram þar sem hún birti mynd af sonunum Ace og Maxwell.

Simpson segir drengina kampakáta yfir því að komast aftur í skólann. Þeir eru á leiðinni í nýjan skóla og þetta er nýtt upphaf og fjölskyldan er í skýjunum. 

„Eftir eitt og hálft ár eru þessir hamingjusömu krakkar að byrja aftur í skóla. Nýr skóli. Nýtt upphaf. Þessi fjölskylda hefur verið blessuð,“ segir Simpson á Instagram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert