Hildur og Aronmola eignuðust annan son

Hildur Skúladóttir og Aron Már Ólafsson eiga nú tvo litla …
Hildur Skúladóttir og Aron Már Ólafsson eiga nú tvo litla drengi. Ljósmynd/Instagram

Sálfræðingurinn Hildur Skúladóttir og kærasti hennar, leikarinn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aronmola, eignuðust son á dögunum. Litli drengurinn kom í heiminn hinn 25. október síðastliðinn. 

Hildur greinir frá fæðingu drengsins á Instagram. Þetta er annar sonur þeirra Hildar og Aron, en fyrir eiga þau soninn Birni Blæ. 

„Elsku drengurinn okkar kom loksins í heiminn þann 25.10.21 eftir 41. vikna meðgöngu. Hann var rúmir 15 merkur og gekk fæðingin eins og í sögu. Birnir Blær er svo stoltur í nýja hlutverkinu sem stóri bróðir,“ skrifar Hildur. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert