Fjölmiðlakonan Anna Marsibil Clausen og kærasti hennar, hljóðmaðurinn Eiríkur Sigurðarson, eiga von á barni saman. Anna greindi frá þessu á Instagram í dag.
Anna Marsibil er dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu. Þar stýrir hún Lestinni á Rás 1 en hefur einnig slegið í gegn með þáttum sínum Ástarsögur.
„Undanfarið hef ég einbeitt mér að því að taka meira pláss í heiminum. Eigum von á nýrri manneskju í mars 2022,“ skrifaði Anna í færslu á Instagram.
Þetta er fyrsta barn þeirra Önnu og Eiríks saman en fyrir á hann eina dóttur.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!