Er bara kona með líkama en ekki ólétt

Kourtney Kardashian er ekki ólétt.
Kourtney Kardashian er ekki ólétt. Skjáskot/Instagram

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian þurfti enn og aftur að neita því að hún væri ólétt í vikunni. Hin 42 ára gamla Kardashian trúlofaðist unnusta sínum Travis Barker fyrir skömmu. Fylgjendur hennar oftar en ekki fullvissir um að ástfangna parið eigi von á pari.

Kardashian birti nokkrar myndir af sér í heitum pott ásamt unnustanum og dóttur sinni í vikunni. Sundfatnaðurinn sem systir hennar Kim Kardashian hannaði í samstarfi við Fendi var ekki það sem vakti athygli. 

„Ekki til þess að vera þessi pía en... er þetta óléttubumba,“ skrifaði fylgjandi Kardashian. Stjarnan er vön umtalinu en ákvað þó að svara fyrir sig að því fram kemur á vef Yahoo. „Ætlum við virkilega að gera þetta í hvert sinn sem ég birti mynd.“ Af þessu svari má lesa að Kardashian er ekki ólétt. 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fylgjendur Kardashian halda því fram að hún sé ólétt. „Hún er ólétt,“ skrifaði einn fylgjandi við myndir sem stjarnan birti í ágúst. „Ég er kona með líkama,“ svaraði þá Kardashian. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert