Hamingjusöm með nýjustu viðbótina

Feðginin Harper og David Beckham.
Feðginin Harper og David Beckham. Skjáskot/instagram

Beckham-fjölskyldan virðist vera í skýjunum með nýjasta fjölskyldumeðliminn sem var frumsýndur á dögunum. Yngsta dóttir Beckham-hjónanna, Harper, fékk draum sinn uppfylltan nýverið og eignaðist kanínuna Coco. 

Harper er mikill dýravinur og skein gleðin úr andliti hennar þegar kanínan Coco Beckham hafði gert sig heimakomna á heimilinu í síðastliðinni viku. Miðað við myndefni sem David Beckham deildi í sögu á Instagram var hamingjan á heimilinu allsráðandi. Loðin hvít og brún kanínan fékk óskerta athygli frá fjölskyldunni og virtist líka vel við faðma þeirra.  

Harper og Coco Beckham.
Harper og Coco Beckham. Skjáskot/Instagram

„Kanínu ást,“ skrifaði fjölskyldufaðirinn við mynd af dóttur sinni sem gat ekki hætt að brosa yfir nýjustu viðbótinni. David deildi einnig myndskeiði af sjálfum sér liggjandi á gólfinu við kanínubælið og gaf Coco „nebbakoss“.

Þá greindi Victoria Beckham líka frá komu kanínunnar inn í fjölskylduna með krúttlegum myndum af þeim Harper og Coco. „Harper fékk kanínuna sína í hendurnar í dag,“ sagði Victoria.

Þetta er sennilega ein heppnasta kanína í heimi.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert