Þunguð þrátt fyrir getnaðarvörn

Sharna Burgees.
Sharna Burgees. Skjáskot/Instagram

Dansarinn Sharna Burgees, kærasta leikarans Brians Austins Greens, segist hafa verið á getnaðarvörn þegar hún varð ófrísk. Barneignir voru fjarri plönum parsins í náinni framtíð og því kom þungunin þeim báðum í opna skjöldu. 

Burgees á von á sér í júlí en þetta er hennar fyrsta barn en Green á fjóra drengi úr fyrra hjónabandi en hann var giftur ofurfyrirsætunni Megan Fox á árum áður. Aðdáandi Burgees spurði hana á Instagram á dögunum hvort það hafi komið henni á óvart að hún væri ófrísk. Það stóð ekki á svörunum hjá Burgees en hún sagðist hafa verið á getnaðarvörn og að barneignir hefðu ekki verið skipulagðar á milli hennar og Greens. 

„Ég hefði getað hugsað mér að „reyna“ að eignast barn seint á árinu 2022 en alheimurinn gerði sína eigin áætlun. Fann góðan glugga til að fara inn um,“ skrifaði Burgees til aðdáandans. Fréttamiðillinn Page Six greindi frá.

Parið trúir á örlögin og vill meina að allt gerist af ástæðu. „Þetta er svo sannarlega góð tímasetning og við erum spennt fyrir komandi tímum,“ sagði Burgees hamingjusöm með hlutskiptin, þrátt fyrir að hafa tekið getnaðarvarnarpillur samviskusamlega til fjölda ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert