52 ára og annað barn á leiðinni

Petra Mede á von á sínu öðru barni.
Petra Mede á von á sínu öðru barni. Skjáskot/Instagram

Sjónvarpskonan sænska Petra Mede á von á sínu öðru barni. Mede, sem er 52 ára, greindi frá þessu í viðtali við Nyhetsmorgon á TV4 um helgina. 

„Ég er svo ótrúlega hamingjusöm og finnst þetta svo mikil forréttindi. Ég tek einn dag í einu. Það aldrei neitt sjálfgefið, það er ekki sjálfgefið að verða ólétt,“ sagði Mede í viðtalinu. 

Stjórnandi þáttarins Jenny Strömstred spurði hvort það væri einhver faðir inni í myndinni. „Nei, ég er að gera þetta sjálf, eins og ég geri svo margt annað í lífinu,“ sagði mede sem bætti við að hún væri gengin um sex mánuði. 

Mede hefur verið kynnir sænsku söngvakeppninnar Melodifestivalen tvisvar sinnum og hefur einnig verið kynnir Eurovision árin 2013 og 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert