Mamman hefur gert mest

Ásta, Ian og Ella taka öll þátt í að undirbúa …
Ásta, Ian og Ella taka öll þátt í að undirbúa fermingu Ians sem verður bráðlega. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ásta Valdís Borgfjörð, klæðskeri og flugfreyja, ætlar að ferma son sinn Ian Arthur um páskana og bjóða upp á opið hús þar sem girnilegar kökur verða á veisluborðinu. Enda veit hún ekkert betra en góðar girnilegar kökur og tekur undir með Marie Antoinette sem spyr hvers vegna mat ef tertur eru í boði? 

Ian Arthur er ári á undan í skóla og því að fermast 13 ára. Hann er í Foldaskóla og kann vel við sig þar.

„Mér finnst gaman í skólanum en einnig að hitta vinina í félagsmiðstöðinni okkar. Svo elska ég góðar kvikmyndir og að fara í bíó. Ég vil finna mér vinnu í sumar, nota fríið vel og vera duglegur að vinna mér inn laun,“ segir Ian sem ætlar sér að verða lögfræðingur og viðskiptamaður í framtíðinni.

Hann er þeim stóra kosti gæddur að elska íslenskan vetur og því hefur fermingarundirbúningurinn að hans mati verið bara skemmtilegur. Sérstaklega þegar hann kemst á skíði á milli skóla og annarra skyldustunda.

„Já, ég vil geta farið á skíði og á nýja snjóbrettið mitt sem ég er alltaf að æfa mig að ná að verða flinkur á.“

Mamman hefur gert mest en ber allt undir fermingarbarnið

Ian mun fermast í Grafarvogskirkju um páskana eins og komið hefur fram og verður veisla síðan haldin heima hjá honum til að halda upp á ferminguna.

Hvernig hefur undirbúningurinn gengið?

„Mamma hefur gert mest, en hún spyr mig alltaf að því hvað það er sem ég vil. Hvað mér finnst flott og hvernig ég vil hafa allt sem viðkemur fermingunni. Það er fínt af því að þá er þetta eins og ég vil hafa það.“

Ian spáir mikið í fötum og tísku almennt.

„Ég vil vera fínn en samt í þægilegum fötum og ekki of karlalegur. Ég er búin að finna buxur og skyrtu en á eftir að finna rétta jakkann.“

Hvaða gjafir óskarðu þér að fá í fermingargjöf?

„Ég er ekki mikið að spá í það en finnst alltaf gott að fá bara pening svo ég geti keypt það sem mig langar í, það sem mig vantar eða eitthvað sem kostar mikið og ég get safnað mér fyrir.“

Það skiptir Ian máli að allir skemmti sér í fermingunni …
Það skiptir Ian máli að allir skemmti sér í fermingunni hans. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ætlar að passa upp á börnin í veislunni

Ian á eldri systur sem heitir Ella Margrét, hún fermdist fyrir einu og hálfu ári.

„Það er frekar stutt síðan Ella fermdist svo hún er búin að vera að hjálpa mér að velja ýmislegt sem viðkemur útliti veislunnar svo dæmi séu tekin. Hún er mjög góð í því. Ella elskar líka að tala og að halda ræður.

Hún var sem dæmi nýverið á Barnaþinginu þar sem hún talaði við forsætisráherra. Hún vil örugglega halda ræðu í fermingunni minni,“ segir Ian.

Þegar kemur að skemmtunum í veislunni þá er hann á því að það sé mjög gott að hafa leikaðstöðu fyrir krakka.

„Annars finnst þeim hundleiðinlegt í veislum og þá truflast eldri systkini og foreldrar, þess vegna ætla ég að setja upp svona alls konar leiki og dót fyrir yngri krakkana.“

Ætlar að hafa opið hús á fermingardaginn

Ásta Valdís Borgfjörð er vön fermingarundirbúningi og segir hann hafa gengið prýðilega.

„Þegar ég þorði að fara af stað í undirbúningnum, þá hefur vel tekist til. Hún Ella mín fermdist árið 2020. Hún átti að fermast um páskana

en samkomutakmarkanir, lokanir og frestanir á fermingardögum ollu því að hún endaði á að fermast í lok ágúst. Vegna þessarar reynslu vildi ég ekki hella mér í undirbúninginn af

krafti fyrr en það væri alveg á hreinu að ferma mætti drenginn á tilsettum tíma án nokkurrar hættu á að nýjum dagsetningum, svo ég hélt að mér höndum með að fara af stað, gera og græja, panta allt saman þar til ég var viss um að engar takmarkanir eða lokanir myndu eiga sér stað. En aftur þá var ég svo nýbúin að ferma, sem þýðir að ég var með allt saman enn ferkst í minni og þurfti því næstum bara að ýta á „reload“-takkann. Ella mín hefur mikið verið að hjálpa mér og að sannfæra fermingardrenginn um hvað er fallegast og flottast. Sem dæmi þegar

kemur að servéttum og kortum sem hún hefur fundið sjálf á netinu alla

leið fyrir austan hjá Héraðsprenti á Egilsstöðum. Hún fann þetta fyrir sína fermingu og fannst þetta það flottasta og að Ian ætti að fá eins og hún gerði.“

Þegar Ella fermdist var kökuboð líkt og verður í fermingunni …
Þegar Ella fermdist var kökuboð líkt og verður í fermingunni hans Ians.

Ásta er þekkt fyrir að gera góðar veislur og verður fermingin hans Ians engin undantekning á því.

„Mikilvægast er að allir hafi gaman af og öllum líði vel. Að andrúmsloftið sé afslappað og þægilegt. Þess vegna verður opið hús, sem mér finnst svo sniðugt fyrirkomulag. Ég fékk þessa hugmynd að láni frá Hjördísi vinkonu minni sem hafði þennan háttinn á þegar hún fermdi miðjubarnið sitt hana Uglu. Með þessum hætti komast allir þegar þeim hentar. Við erum svo önnum kafin í nútímaþjóðfélaginu, sumir eru kannski að fara í tvær eða fleiri fermingarveislur sama daginn, eða það er íþróttaviðburður hjá börnunum, afmæli eða hvað eina,“ segir Ásta.

Ertu búin að ákveða með matinn og hvað er ómissandi tengt fermingu barnanna?

„Það verður tertuveisla. Ég elska tertur og ég elska að baka.

Ég er nú bara svolítið sammála Marie Antoinette sem sagði: Af hverju að borða brauð ef þú getur fengið þér brioche? Sem lauslega gæti þýðst: Hvers vegna matur ef tertur eru í boði?

Það sem mér finnst ómissandi á

fermingarborðið er okkar norræna kransatertan, fallega skreytt með styttu á toppnum. Hún er svo táknræn fyrir þessa fallegu fermingarstund, hana baka ég ekki en læt Björnsbakarí sjá um að gera hana fullkomna. En ég baka aðra kransaköku sem er meira fyrir yngri kynslóðina, það er Rice Krispies-kransakaka, sem ég sá fyrst í fermingu hjá vinkonu minni þegar hún fermdi elsta drenginn sinn og fékk ég uppskriftina hjá henni.

Það var fyrsta fermingin hans Ians, en þá var hann aðeins nokkurra vikna gamall.

Uppáhaldssparitertan mín, sem ég baka auðvitað sjálf, er Red Velvet tetra, hún er svo ljúffeng, dásamlega falleg og ofur góð. Ómissandi á kaffiborðið er auðvitað líka marengs-kaka, en allir elska marengs.“

Ásta er gamaldags þegar kemur að undirbúningi að veislum að eigin sögn.

„Ég byrja að punkta allt niður til minnis. Hvað þarf að kaupa, panta, baka, fá lánað, pússa og strauja svo dæmi séu tekin. Síðan er mikilvægt að fara af stað með góðum fyrirvara.“

Ella og Ian eru náin og skemmtu þau sér vel …
Ella og Ian eru náin og skemmtu þau sér vel saman í fermingunni hennar Ellu á sínum tíma.

Skiptir ekki máli þótt eitthvað verði öðruvísi en planað var

Í hverju ætlar fermingarmamman að vera?

„Ég er svo heppin að í gegnum starf mitt sem klæðskeri og kjólameistari þá á ég svo mikið af fallegri, íslenskri, klassískri hönnun, sérstaklega frá ELLA og Spaksmannsspjörum og einnig svolítið frá Steinunni. Ég trúi á að vanda valið við kaup á fatnaði, velja klassísk snið, góð efni, fallegan frágang, stílhreina hönnun, passandi „silúettu“ og það sem lætur manni líða vel í vegna vitneskju um að flíkin sé hönnuð, unnin og framleidd af fullorðnu fólki við mannsæmandi aðstæður. Ef við vöndum okkur við val á fatnaðnum okkar þá erum við glæsileg til fara. Við eigum flíkurnar mun lengur og erum alltaf vel til höfð. Að kaupa endalaust nýtt og henda er ekki minn „tebolli“.

Áttu gott ráð fyrir aðra foreldra sem eru að ferma á þessu ári?

„Þetta er gleðistund, við erum að fagna fallegum unglingi að taka stórt skref inn í framtíðina sína og uppvöxtinn með öllu okkar besta fólki. Veisla á að vera skemmtileg og afslöppun, alls ekki stress. Það skiptir engu máli þótt eitthvað verði öðruvísi en upp var lagt með, það fattar það enginn hvort sem er, og svo eru það mistökin sem eru oftast eftirminnilegust og skemmtilegust að hlæja að um ókomna tíð. Því langar mig að hvetja okkur sem erum að halda fermingar á þessu ári að njóta og fagna.“

Ella mun líklegast halda ræðu í fermingunni hans Ians.
Ella mun líklegast halda ræðu í fermingunni hans Ians.
Girnilegar kökur voru í fermingu Ellu á sínum tíma.
Girnilegar kökur voru í fermingu Ellu á sínum tíma.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert