Pissaði yfir pabba sinn í Disneylandi

Grínistinn Nick Cannon.
Grínistinn Nick Cannon. Skjáskot/Instagram

Grínistinn Nick Cannon hélt upp á eins árs afmæli tvíburasona sinna, Zion og Zillion, í Disneylandi fyrr í vikunni ásamt barnsmóður sinni, Abby De La Rosa. Samkvæmt færslu sem Cannon deildi á Instagram ríkti mikil spenna á meðal fjölskyldunnar þennan dag en þetta var í fyrsta skipti sem tvíburarnir heimsóttu skemmtigarðinn Disneyland og í fyrsta skipti sem þeir héldu upp á afmæli.

Ekki er ólíklegt að dagurinn eigi eftir að festast enn frekar í minni fjölskyldunnar því Zion, annar tvíburinn, pissaði yfir föður sinn þegar fjölskyldan stillti sér upp með Mikka Mús. Ummerkin sjást greinilega á mynd sem Cannon birti á Instagram en hann var með blautan pissublett á peysunni á myndinni. Fréttamiðillinn People greindi frá.

„Fyrir ári síðan í dag fæddust Zilly og Zion,“ skrifaði stoltur Cannon við myndina áður en hann sagði söguna á bakvið blettinn. „Ég býst við að eplið falli ekki langt frá eikinni því þegar ég var eins árs varð ég svo spenntur að ég pissaði yfir afmæliskökuna mína og fljótlega eftir að Zion hitti Mikka Mús á afmælisdag sinn lét hann bara vaða yfir mig allan,“ útskýrði Cannon. „Það er það sem er að gerast á þessari mynd. Piss út um allt!“ sagði hann jafnframt og notaði hlæjandi lyndistákn til að myndskreyta uppátækið hlægilega.

Cannon opinberaði fyrir skömmu að hann ætti von á þremur börnum á næstu misserum en hann á nú þegar sjö börn. Greindi hann þó ekki frá hverjar barnsmæður hans í næstu skipti eru en Abby De La Rosa, móðir tvíburanna Zillions og Zions, greindi frá því nýverið að hún væri barnshafandi. Telja aðdáendur Cannons að hún sé aftur ófrísk eftir hann og að hún gangi í það minnsta með tvíbura, í annað sinn.

View this post on Instagram

A post shared by NICK CANNON (@nickcannon)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert