Opnar sig um áskoranir móðurhlutverksins

Rebel Wilson á eina dóttur sem getin var með aðstoð …
Rebel Wilson á eina dóttur sem getin var með aðstoð staðgöngumóður. AFP

Rebel Wilson segir það krefjandi að vera bæði í fullri vinnu og sjá um ungbarn á sama tíma en Wilson á eina dóttur sem fæddist í haust.

„Maður heldur á barninu og klippir á naflastrenginn. Frá þeirri stundu er þetta magnað og hlaðið tilfinningum.“

Wilson sem er 42 ára segir það hafi tekið tíma að finna nýjan takt í lífinu eftir tilkomu dótturinnar.

„Það er mjög krefjandi. Ég er með stóran og alþjóðlegan feril og þarf að færa björg í bú. Hvernig geri ég þetta allt og er á sama tíma frábært foreldri, maki og allt það?“ spyr Wilson. 

Þrátt fyrir að Wilson hafi verið foreldri í nokkrar vikur þá hefur hún strax hlotið gagnrýni á samfélagsmiðlum. Hún birti til að mynda mynd af sér í veislu hjá Paris Hilton stuttu eftir fæðingu barnsins. Allir vildu vita hvar barnið væri og sögðust aldrei myndu fara frá svo ungu barni. Wilson eyddi myndinni og hefur ekki tjáð sig um málið.

View this post on Instagram

A post shared by Rebel Wilson (@rebelwilson)



Ramona Agruma og Rebel Wilson eru huggulegt par.
Ramona Agruma og Rebel Wilson eru huggulegt par. Skjáskot/Instagram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert