Kraftlyftingakonan og þjálfarinn Arnhildur Anna Árnadóttir og kærasti hennar Alfreð Már Hjaltalín heilsunuddari eiga von á barni.
Þetta er fyrsta barn parsins saman. Þau birtu fallega mynd á Instagram í kvöld af þremur skópörum og skrifa: „bráðum verðum við mamma og pabbi.“
Arnhildur Anna hefur náð framúrskarandi árangri í kraftlyftingum á undanförnum árum og þjálfar nú kraftlyftingar. Alfreð Már er heilsunuddari og starfar hjá Kírópraktor Lindum.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!