Jóhann Páll og Anna eignuðust dóttur

Jóhann Páll Jóhannsson og Anna Bergljót Gunnarsdóttir tóku á móti …
Jóhann Páll Jóhannsson og Anna Bergljót Gunnarsdóttir tóku á móti sínu fyrsta barni saman síðastliðinn laugardag. Samsett mynd

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, og Anna Bergljót Gunnarsdóttir, nýdoktor í efnafræði við Háskóla Íslands, eignuðust dóttur á laugardag, 14. janúar.  

Parið greindi frá því í október að þau ættu von á stúlku með sameiginlegri færslu á Instagram. Þar sögðu þau sitthvað vera að bakast og deildu mynd af Önnu óléttri og nýbakaðri pítsu. 

Nú er stúlkan, sem er fyrsta barn Jóhanns og Önnu, komin í heiminn. Foreldrarnir deildu gleðifregnunum á Facebook í gær, fimmtudag. Þar sögðu þau dótturina vera yndislega og að allt gangi eins og í sögu. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert