Óléttar og glæsilegar á rauða dreglinum

Karlie Kloss, Rihanna og Serena Williams eru allar ófrískar af …
Karlie Kloss, Rihanna og Serena Williams eru allar ófrískar af sínu öðru barni. Samsett mynd

Met Gala-hátíðin er á allra vörum þessa stundina, en hún var haldin hátíðlega á Metropolitian safninu í New York-borg í gærkvöldi.

Þangað mættu skærustu stjörnurnar og skörtuðu klæðnaði frá fremstu tískuhúsum heims. Sumar stjörnur skörtuðu þó einnig óléttukúlu, en þær eiga það allar sameiginlegt að vera ófrískar af sínu öðru barni.

Tískudrottningin olli ekki vonbrigðum

Ár hvert bíða tískuunnendur spenntir eftir að sjá tónlistardívuna Rihönnu ganga rauða dregilinn á Met Gala-hátíðinni. Hún stal að sjálfsögðu senunni þegar hún mætti með kærasta sínum, tónlistarmanninum A$AP Rocky. Rihanna klæddist töfrandi hvítum kjól frá Valentino og blómskreyttri kápu.

Parið á von á sínu öðru barni saman, en fyrir eiga þau son sem verður eins árs hinn 13. maí næstkomandi.

Rihanna var stórglæsileg í kjól frá Valentino sem sýndi óléttukúluna …
Rihanna var stórglæsileg í kjól frá Valentino sem sýndi óléttukúluna vel. MIKE COPPOLA

Á von á sínu öðru barni 41 árs

Tennisstjarnan Serena Williams kom aðdáendum sínum á óvart þegar hún greindi frá því að hún ætti von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum, Alexis Ohanian, rétt áður en hún mætti á Met Gala-hátíðina. 

Williams og Ohanian eiga fyrir eina dóttur, Olympiu, sem kom í heiminn í september 2017.

Serena Williams geislaði í kjól frá Gucci.
Serena Williams geislaði í kjól frá Gucci. AFP

Tilkynnti óléttuna á rauða dreglinum

Gestir Met Gala-hátíðarinnar ráku upp stór augu þegar fyrirsætan Karlie Kloss mætti á rauða dregilinn það sem hún tilkynnti að hún ætti von á sínu öðru barni. Fyrirsætan klæddist svörtum langerma kjól frá Loewe sem sýndi óléttukúluna vel og var skreytt með fallegum perlufestum. 

Kloss og eiginmaður hennar, Joshua Kushner, eiga fyrir einn son, Levi, sem kom í heiminn árið 2021.

Karlie Kloss kom öllum á óvart þegar hún skartaði óléttukúlu …
Karlie Kloss kom öllum á óvart þegar hún skartaði óléttukúlu á rauða dreglinum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert