Selling Sunset-stjarnan og fasteignasalinn, Maya Vander, er ófrísk að sínu fjórða barni með eiginmanni sínum, Dave Miller.
Í samtali við The Us Sun sagðist Vander vera komin níu mánuði á leið og því væri von á barninu, sem er stúlka, hvað úr hverju. Gleðifregnirnar koma rúmlega einu og hálfu ári eftir að Vander fæddi andvana barn á 38. viku.
„Þetta er spennandi, en í þetta skiptið hef ég meiri ótta og meiri áhyggjur vegna síðustu meðgöngu. Ég hélt mig frá samfélagsmiðlum vegna þess að ég hef misst barn þegar ég var gengin níu mánuði,“ sagði Vander.
Sex mánuðum eftir að Vander fæddi andvana barn greindi hún frá því að hafa misst fóstur. „Ég átti mjög klikkaða viku. Fósturlát eftir 10 vikur ... eftir andvana fæðingu ... en börnin mín og maðurinn minn eru blessun mín og ég er svo heppin að vera móðir þeirra,“ skrifaði hún á Instagram á þeim tíma.