Seinni meðgangan ólík þeirri fyrri

Rihanna skartaði sínu fegursta á Met Gala.
Rihanna skartaði sínu fegursta á Met Gala. AFP/Mike Coppola

Söngkonan Rihanna segir að seinni meðganga hennar gangi allt öðruvísi fyrir sig en sú fyrsta. Núna finni hún ekki fyrir neinni matarlöngun en hafi þvert á móti upplifað mikla morgunógleði.

Rihanna á von á sínu öðru barni með kærastanum ASAP Rocky, en fyrir eiga þau tæplega árs gamlan son.

Meðgöngurnar gjörólíkar

Á dögunum opnaði söngkonan sig um meðgönguna í viðtali við Entertainment Tonight á rauða dreglinum á Met Gala-hátíðina. Hún sagði að meðgöngurnar tvær væru nánast eins og svart og hvítt. Hins vegar nyti hún þessarar meðgöngu mjög mikið, enda liði henni vel og væri full af orku.

Það kom mörgum á óvart að Rihanna ætti von á sínu öðru barni svo stuttu eftir fæðingu frumburðarins, þar á meðal föður hennar. Hún sýndi óléttukúluna fyrst opinberlega þegar hún kom fram á hálfleiksskemmtun bandarísku Ofurskálarinnar í febrúar síðastliðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert