Love Island-stjarna og framherji West Ham eignast tvíbura

Dani Dyer og Jarrod Bowen eignuðust tvíbura á dögunum.
Dani Dyer og Jarrod Bowen eignuðust tvíbura á dögunum. Samsett mynd/Skjáskot Instagram

Love Island-stjarnan Dani Dyer og fótboltamaðurinn Jarrod Bowen hafa eignast tvíburadætur. Daginn áður var Dyer á vellinum, þegar Bowen skoraði í sigurleik West Ham gegn Leeds United.

Dyer deildi gleðifréttunum á Instagram-síðu sinni í vikunni, en hún hefur verið dugleg að deila fréttum af meðgöngunni með aðdáendum sínum. Var hún til að mynda búin að tilkynna að hún væri bókuð í keisaraskurð daginn sem dæturnar fæddust. 

Tvíburarnir eru annað og þriðja barn Dyer, en hún á einnig tveggja ára gamlan son frá fyrra sambandi sínu.  



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert