Það er nú frekar ljóst að allir þeir sem ætluðu sér að flatmaga á ströndinni um páskana eru ekki að fara gera það þetta árið. Hótel víða um heim hafa hinsvegar tekið upp á því að streyma myndböndum af ströndum sínum, svo þú getir fengið smá strandarstemningu heim í stofu þrátt fyrir að vera fastur heima.
Hefur þú einvertímann komið til Malibu-strandar? Ef ekki getur þú allavega kíkt á ströndina með beinu streymi frá Malibu Beach Inn. Beint streymi hér.
Besta útsýnið frá Hotel Del Coronado sést í beina streyminu sést hér. Hótelið er í San Diego og hefur útsýni yfir Kyrrahafið. Beint streymi hér.
Viltu annað sjónarhorn af San Diego? Gjörðu svo vel, Bahia Resort býður þér upp á streymi af ströndinni sinni á Mission Bay. Beint streymi hér.
Hvernig er staðan fyrir botni Miðjarðarhafsins? Þú getur tekið stöðina með þessu ótrúlega beina streymi sem sýnir borgarlandslagið í Jerúsalem. Beint streymi hér.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.