Hús á eina evru í „Covid-fríu“ þorpi

Cinquefrondi á Ítalíu.
Cinquefrondi á Ítalíu. Skjáskot/Instagram

Þorpið Cinquefrondi á Suður-Ítalíu býður nú hús til sölu á aðeins eina evru. Þetta er ekki fyrsti bærinn á Ítalíu sem býður húsnæði á lítinn sem engan pening en sá fyrsti sem gerir það eftir heimsfaraldurinn.

Helsti sölupunktur Cinquefrondi er að þar greindust engin kórónuveirusmit í heimsfaraldrinum og vonast bæjaryfirvöld til að sú staðreynd laði tilvonandi íbúa að. 

Cinquefrondi er staðsettur í Calabria-héraði og markaðsetur sig sem „Covid-frítt þorp“. 

Tilgangurinn með því að bjóða ódýrt húsnæði er að laða til sín fleiri íbúa, en íbúum hefur farið fækkandi á svæðinu í nokkra áratugi. 

„Að leita að nýjum eigendum fyrir yfirgefnu húsin er burðarliðurinn í fegrunaraðgerðinni sem ég hóf til að lífga upp á hluta bæjarins,“ sagði bæjarstjórin Michele Conia í viðtali við CNN Travel

Tilboðið sem Cinquefrondi er ólíkt því sem gerist í öðrum bæjum, þar sem farið er fram á allt að 5 þúsund evra tryggingagreiðslu sem fæst endurgreidd ef kaupendur endurgera húsið innan þriggja ára. Cinquefrondi krefst þess aðeins að kaupendur greiði árlegt tryggingagjald upp á 250 evrur þar til endurbótum á húsinu lýkur. 

Enginn í bænum greindist með kórónuveiruna.
Enginn í bænum greindist með kórónuveiruna. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka