Kynna nýja ferðaleið á Suðurlandi

Aðstandendur Vitaleiðarinnar.
Aðstandendur Vitaleiðarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Vitaleiðin er ný ferðaleið niður við suðurströndina. Vitaleiðin nær frá Selvogi í Ölfusi að Knarrarósvita í Árborg og er leiðin um 45-49 km löng, eftir því hvort ekið er eftir vegi eða strandlínan nýtt.

Vitaleiðin er ferðaleið sem beinir athygli að þorpunum og svæðinu við sjóinn. Á Vitaleiðinni heimsækir þú þrjá bæi, hvern með sína sérstöðu, Þorlákshöfn, Eyrarbakka og Stokkseyri. Vitaleiðin dregur fram þá miklu sögu og menningu sem er til staðar á svæðinu, sem og fjölda ólíkra upplifunarmöguleika í afþreyingu og náttúru. Vitaleiðin er um 45-49 km leið, fer eftir ferðamáta og nær frá Selvogi að Knarrarósvita. 

Nafngiftin kemur vegna vitanna, Selvogsvita og Knarrarósvita, sem marka upphaf og enda leiðarinnar, að auki er þriðji vitinn á leiðinni Hafnarnesviti í Þorlákshöfn. Vitaleiðin býður upp á þá skemmtilegu fjölbreytni að ferðalangar geta ekið hana, nýtt strandlengjuna eða þá göngustíga sem búið er að leggja meðfram ströndinni, gengið, hlaupið, farið ríðandi á hestum eða jafnvel hjólað.  

Það er margt að skoða og upplifa á Vitaleiðinni; fyrir utan vitana þrjá er svæðið ríkt af sögu, náttúru og dýralífi. Góða veitingastaði má finna í hverju þorpi, hvern með sína upplifun. Söfnin eru fjölbreytt og mörg. Einnig er fjölbreytni í náttúru og dýralífi. Mikið fuglalíf er á svæðinu, sem og fjölbreytileiki í fjörum og ströndum. Ef litið er út á hafið má mögulega sjá seli spóka sig.

Íslendingar og aðrir ferðamenn eru hvattir til að upplifa Vitaleiðina og allt það sem hún hefur upp á að bjóða og heimsækja svæðið í sumar, njóta góðra veitingastaða, fjölbreyttrar afþreyingar og gistingar og heimsækja fjölbreytt söfn og gallerý sem eru til staðar á Vitaleiðinni. Tilvalin ferðaleið, en allar nánari upplýsingar um leiðina má finna á www.south.is/vitaleidin.

Vitaleiðin er unnin í samvinnu Markaðsstofu Suðurlands, Sveitarfélagsins Árborgar og Sveitarfélagsins Ölfuss ásamt rekstraraðilum á svæðinu.

Opnunarhátíð Vitaleiðarinnar verður laugardaginn 15. ágúst kl. 13.00 við Stað á Eyrarbakka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert