Þegar patreksfirðingurinn Birta Eik F. Óskarsdóttir útskrifaðist með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands sá hún ekki fyrir að í desember sama ár myndi hún búa í Barselóna á Spáni og reka þaðan sitt eigið fyrirtæki. Birta segist sjálf geta verið svolítið óútreiknanleg en það var einmitt þess vegna að hún endaði í Barselóna.
Á meðan hún lagði stund á viðskiptafræðina í HÍ vann hún hjá lögreglunni og stefndi á að fara í lögregluskólann eftir útskrift. „Ég tók skemmtilega ákvörðun að fara í mastersnám í Barcelona á Spáni með það markmið að læra nýja hluti, kynnast nýju fólki og upplifa það að búa erlendis,“ segir Birta sem er að læra business management við ESEI International Business School. Skólinn er lítill einkarekinn skóli og eru aðeins 20 nemendur í hverjum bekk.
Námið er verkefnamiðað og felur í sér fjölda kynninga en engin próf. „ Einnig eru flest verkefnin tengd atvinnulífinu á einhvern átt t.d. í einum áfanga sáum við ráðstefnuna Fixing the Futre, sem var mjög áhugaverð. Kennararnir í skólanum eru frábærir og eru mjög tengdir atvinnulífinu sem kennir mér mikið. Ég valdi þennan skóla vegna þess að ég vissi að þetta yrði mikil áskorun fyrir mig, þar sem mér þykir mjög erfitt að halda kynningar og koma fram og þá sérstaklega því þær er á ensku. Ég hef trú á því að námið muni hjálpa mér að vaxa sem einstaklingur og gerir mig tilbúna fyrir atvinnumarkaðinn,“ segir Birta.
Þegar Birta var að skoða háskólanám erlendis var hún ákveðin í því að velja sér skóla í Edinborg á Skotlandi. „Í fyrstu var ég ákveðin að fara til Edinborgar því ég hef ferðast þangað og féll strax fyrir þessari fallegu borg. Ég var að forvitnast um veðrið á báðum stöðum og ég var ekki lengi að skipta um skoðun að fara frekar til Barcelona, því hérna er heitara loftslag og svo skín sólin oftar hérna. Spænskan spilar stóran part í ákvörðunartökunni því mig hefur lengi langað að læra spænsku,“ segir Birta.
Hún segir fyrstu mánuðina í borginni hafa verið gríðarlega lærdómsríka og skemmtilega. Hún er búin að kynnast mikið af frábæru fólki og læra nýja hluti.
„Þetta hefur reynt á mig sem einstakling og hefur líka hjálpað mér að kynnast sjálfri mér og tilfiningum mínum betur. Ég er mjög sjálfstæð og vil helst standa á eigin fótum, þótt að fjölskylda og vinir séu alltaf tilbúin að aðstoða mig sem ég kann vel að meta. Það er og hefur alltaf verið eitthvað í mér að ég ætla að stand mig sama hvað. Ætli þetta sé ekki bara þjóskan í mér,“ segir Birta sem hvetur alla sem hafa tækifæri til að flytja einir til útlanda.
Samhliða náminu úti hefur hún komið á fót litlu fyrirtæki sem heitir Eik hönnun. Undir Eik hönnun hannar hún veggspjöld sem eru krossgátur með lýsingarorðum eða nöfnum fjölskyldumeðlima. „Mér datt þetta í hug eitt kvöldið þegar ég var að spila Scrabble við mömmu. Fór þá að vafra um á internetinu og sá að það var enginn að gera neitt svona svipað. Ég var búinn að vera með þessa hugmynd í kollinum í tvö ár áður en ég lét verða af þessu. Skrítið að segja það en ég fékk kjarkinn til að gera þetta eftir að ég flutti út. Ég sem sagt flutti út mánuði áður en skólinn minn byrjaði, til að kynnst borginni og vita muninn á hægri og vinstri hér,“ segir Birta.
Mestur frítími hennar fer í gerð veggspjaldanna. „Þeir sem þekkja mig vel vita að ég þarf alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni og finnst voða leiðinlegt að gera ekki neitt. Þannig eftir að hafa verið hér í u.þ.b. 2 vikur og búin að ná áttum og kynnast umhverfinu ákvað ég að láta að verða af þessu og sé aldeilis ekki eftir því. Vinir og fjölskylda eru líka klárlega stór partur af því að ég lét verða af þessu, þau hvöttu mig endalaust áfram,“ segir Birta.
Birta hannar veggspjöldin úti í Barselóna en eru þau prentuð hér heima á Íslandi í umhverfisvottaðri prentsmiðju. „Vinkona mín bauðst til þess að sjá um allt fyrir mig á Íslandi. Þetta var frábært tækifæri fyrir okkur báðar þar sem hún var að byrja í fæðingarorlofi og fannst nauðsynlegt að hafa eitthvað fyrir stafni,“ segir Birta.
Birta ætlar að eyða jólunum á Tenerife en hún er svo heppin að foreldrar hennar búa þar um helming ársins. „Til að vera alveg hreinskilin þá sakna ég snjósins og appelsínugulu viðvarananna heima og það verður voða skrítið að hitta ekki restina af fjölskyldunni yfir hátíðirnar, sérstaklega að missa af jólakaffi hjá ömmu á jóladag.“
Hún hefur ekki mikið ferðast út fyrir borgina á þessum mánuðum sem hún hefur búið í henni en á næsta ári stefnir hún á að ferðast meira. Þá ætlar hún í helgarferð til Frakklands.
Hvaða stöðum mælir þú með að fólk heimsæki í borginni?
„Það eru svo margir fallegir staðar til að skoða hér en svo must see er Arc de triomf, Ciutadella park, sagrada familia, Parc guell, Bunkers og svo bý ég á Barceloneta ströndinni og það er alveg nauðsynlegt að fara út að hlaupa á morgnana með fram ströndinni. Einnig er gaman að skoða og labba um gamla bæinn Gotico. Síðan eru svo mörg falleg söfn hér sem gaman er að eyða tíma í að skoða.“
Áttu þér uppáhaldsveitingastað?
„Já þeir eru nú nokkrir, en Honest Greens kemur fyrst upp, ég borða að minnsta kosti þar einu sinni á dag, sem segir mikið til um hversu góður kokkur ég er og hvaða mér þykir gaman að elda.“