Rándýrt snekkjulífið á vel við Beckham-hjónin

David og Victoria Beckham eiga glæsilega snekkju.
David og Victoria Beckham eiga glæsilega snekkju. AFP

David og Victoria Beckham slökuðu á um helgina á fokdýrri snekkju sem þau eiga. Snekkjan var stödd á Miami en staðsetningin kemur ekki á óvart þar sem að elsti sonur þeirra gengur í hjónaband í Palm Springs í Flórída á næstunni. 

Snekkja hjónanna heitir Seven en Beckham var vanur að spila knattspyrnu í treyju númer sjö. Snekkjan var ekki ókeypis, fram kemur á vef Daily Mail að hún sé metin á fimm milljónir punda eða tæpar 850 milljónir íslenskra króna á gengi dagsins í dag. Tíu gestir komast fyrir á snekkjunni en alls eru fjórir í áhöfninni á Seven. 

Með knattspyrnuhetjunni og fatahönnuðinum voru börn þeirra, Harper og Romeo. Fjölskyldan naut góða veðursins en David Backham var í stuttbuxum og stuttermabol á meðan eiginkona hans var í stuttum svörtum kjól. Fjölskyldan var greinilega að taka því rólega fyrir brúðkaupið enda aðeins nokkrir dagar í stóra daginn. 

Brooklyn Beckham og Nicola Peltz eru að fara að gifta …
Brooklyn Beckham og Nicola Peltz eru að fara að gifta sig. AFP/ ANGELA WEISS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert