Helga Braga og Kristín Péturs hefja sig til flugs

Helga Braga Jónsdóttir og Kristín Pétursdóttir eru flottar í flugfreyjubúning …
Helga Braga Jónsdóttir og Kristín Pétursdóttir eru flottar í flugfreyjubúning Icelandair. Samsett mynd

Leikkonurnar Helga Braga Jónsdóttir og Kristín Pétursdóttir taka til starfa sem flugfreyjur hjá Icelandair á næstunni. Stöllurnar útskrifuðust úr flugfreyjuskóla Icelandair ásamt fleirum góðum flugfreyjum í vikunni. 

Helga Braga starfaði bæði hjá Iceland Express og hjá WOW. Kristín Pétursdóttir starfaði einnig hjá flugfélaginu WOW. 

„Útskrifaðist sem flugfreyja hjá Icelandair í dag,“ skrifaði Helga Braga á Instagram. „Velkomið fallega flugsumar!“

Kristín greindi einnig frá nýja starfinu á sínum samfélagsmiðlum. Sagði hún að töfrandi tímar væru framundan í sögu á Instagram. 

María Gomez sem heldur úti lífstíls- og mat­ar­blogg­inu Paz.is útskrifaðist einnig úr flugfreyjuskóla Icelandair. María starfaði meðal annars sem flugfreyja hjá Iceland Express og segir í sögu á Instgram að henni finnist frábært að koma aftur inn eftir 17 ára pásu frá flugbransanum. 

María Gomez er nýútskrifuð flugfreyja.
María Gomez er nýútskrifuð flugfreyja. Skjáskot/Instgram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert