Bílastæðin í Keflavík fyllist um páskana

Búist er við því að bílastæðin við Keflavíkurflugvöll fyllist yfir …
Búist er við því að bílastæðin við Keflavíkurflugvöll fyllist yfir páskana. Myndin er af bílastæðinu fullu yfir páskana 2017. mbl.is/Hilmar Bragi

Búist er við því að bílastæðin við Keflavíkurflugvöll muni fyllast í kringum páska, líkt og gerðist fyrir heimsfaraldurinn. Farþegar á leið til útlanda yfir páska eru hvattir til að bóka bílastæði fyrir brottför. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Isavia sem send var út í dag. 

Með því að bóka bílastæði fyrir brottför tryggja farþegar sér ekki aðeins öruggt stæði heldur fá þeir einnig hagstæðari kjör á stæðinu en ef greitt væri við hliðið. 

Farþegum er einnig bent á önnur úrræði sem í boði eru, svo sem ferðir með rútum, strætó og bílastæðaþjónustu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert