Ída Pálsdóttir er búsett í Kýótó í Japan ásamt eiginmanni sínum og dóttur þeirra. Hún flutti þangað í ársbyrjun 2022 og hefur síðan þá verið dugleg að deila skemmtilegu efni um upplifun sína í Japan á samfélagsmiðlum.
Í desember síðastliðnum kom Ída í skemmtilegt viðtal á ferðavef mbl.is þar sem hún sagði menninguna í Japan vera frábrugðna íslenskri menningu á skemmtilegan hátt. Nýlega bjó hún til TikTok-myndskeið þar sem hún útskýrir menningarmuninn betur og deilir staðreyndum um Japan sem mörgum þykja eflaust furðulegar.
Myndskeiðið hefur vakið mikla athygli á miðlinum, en Ída byrjar á því að segja frá því að í Japan séu allir ennþá með grímu úti, þótt það sé ekki skylda. „Númer tvö – alltaf að vera með pening á sér. Sumstaðar er ekki hægt að borga með korti og Apple Pay ... þeir vita ekkert hvað það er,“ útskýrir Ída.
Því næst segist Ída þurfa að vera í síðermabol þegar hún fer í líkamsræktarstöðvar þar sem það megi ekki sjást í nein húðflúr. „Númer fjögur – fólk elskar að bíða í röð,“ segir Ída.
„Næsta er uppáhaldið mitt. Það er að það kostar 2 þúsund krónur að fara í endajaxltöku hérna,“ útskýrir hún og bætir við að hún sé nú þegar búin að láta taka tvo endajaxla og sé á leiðinni að láta taka þriðja.
@idapals nr 4 þarf ekki útskýringu ég vann í #yezzy #röðinni back in the days íslendingar bera ENGA virðingu fyrir #röðinni :/ #fyp #fypísland ♬ original sound - ÍDA