Heidi Klum vill ekki hafa uppeldið of strangt

Heidi Klum með yngstu dótturina Lou Sulola sem hún á …
Heidi Klum með yngstu dótturina Lou Sulola sem hún á með tónlistarmanninum Seal. Ljósmynd/skjáskot

Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum ráðleggur foreldrum að fylgja flæðinu í uppeldi barnanna. Samkvæmt því virðist hún ekkert vera of upptekin af reglum og skipulagi. 

„Húsið okkar er fullt af lífi, hlátri og stuði. Það hellist alltaf eitthvað niður í hvert skipti sem fjölskyldan sest niður saman. Eða þá að börnin eru komin í skólabúninginn og hella niður á hann meðan þau fá sér morgunmat.

Ég hef sagt þeim um það bil þúsund sinnum að þau eigi ekki að þurrka af höndunum í fötin sín. Og hvað gerist? Þau þurrka matnum af höndunum í fötin sín! En þá fer ég bara í flæðið. Húsið mitt er ekki safn. Það má sjá mjög greinilega að þar búa börn. Húsið er jafnmikið húsið þeirra og það er mitt. 

#heidiklum #love #tokiohotel #tomkaulitz #moto

A post shared by kerli.kaulitz (@kerli.kaulitz) on Aug 11, 2018 at 3:05pm PDT

Heidi Klum á fjögur börn, fædd með stuttu millibili frá árinu 2004 til 2009. Hún á dótturina Helene (Leni) (2004), Henry Günther Ademola Dashtu Samuel (2005), Johan Riley Fyodor Taiwo Samuel (2006) og Lou Sulola Samuel. Hún á þrjú yngstu börnin með söngvaranum Seal en hann ættleiddi elstu dótturina Leni eftir að þau giftust. Þau skildu eftir sjö ára hjónaband, þó svo þau hafi endurnýjað heiti á hverju ári.

Hún hefur tekið saman við gítarleikarann í hljómsveitinni Tokio hotel, Tom Kaulitz, eins og sjá má á myndinni hér ofar af Instagram.  

Happy Pride ❤️🧡💛💚💙💜 #love #liveandletlive #nyc

A post shared by Heidi Klum (@heidiklum) on Jun 24, 2018 at 10:51am PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert