Viltu vita meira um Tinna?

Gísli Marteinn Baldursson verður með fyrirlestur um ævintýri Tinna í …
Gísli Marteinn Baldursson verður með fyrirlestur um ævintýri Tinna í kvöld í Epal í Skeifunni.

Fjölmiðlamaðurinn Gísli Marteinn Baldursson er mikill áhugamaður um ævintýri Tinna. Ef þú elskar Tinna jafnheitt og Gísli Marteinn og langar að gera eitthvað skemmtilegt með börnunum þínum í vetrarfríinu þá ættir þú að heimsækja Epal í Skeifunni í kvöld kl. 19.00.  

Gísli Marteinn er talinn vera okkar helsti Tinna-sérfræðingur en þessi sívinsælu ævintýri eftir höfundinn Hergé komu fyrst út á íslensku árið 1971 og fjölmargar bækur fylgdu í kjölfarið. Gísli Marteinn mun fara yfir ýmsar hliðar bókaflokksins Ævintýri Tinna með gestum þar má nefna kynjahlutverkin eins og þau birtast í bókunum, stjórnmálaskoðanirnar og þá fordóma sem bækurnar ala á. 

Aðdáendur Tinna á Íslandi eru fjölmargir og í Epal Skeifunni má finna gott úrval af Tinnavarningi og safngripum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert