Jolie-Pitt systkinin eyddu sumardegi í Los Angeles

Fyrrverandi Hollywood-hjónin hafa átt í harðri forræðisdeilu frá því þau …
Fyrrverandi Hollywood-hjónin hafa átt í harðri forræðisdeilu frá því þau skildu árið 2016. Samsett mynd

Fjögur af sex börnum fyrrverandi Hollywood-hjónanna Angelinu Jolie og Brad Pitt nutu samveru hvers annars í sumarblíðunni. Fjórmenningarnir kíktu í Maru Coffee í Los Feliz og kældu sig niður með klakafylltum sumardrykkjum.

Systkinin Pax, 19 ára, Zahara, 18 ára, Shiloh, 17 ára og Knox, 14 ára sáust skemmta sér á götum Los Angeles á laugardag. Hópurinn virðist mjög náinn samkvæmt myndum sem birtust á vefmiðli Page Six.

Í hópferðina vantaði elsta systkinið, Maddox, 21 árs sem Jolie ættleiddi einsömul árið 2002 og tvíburasystur Knox, Vivienne, en hún var skírð í höfuðið á móður Jolie sem lést árið 2007.

https://www.mbl.is/folk/frettir/2016/09/20/jolie_saekir_um_skilnad_fra_pitt/

Jolie og Pitt skildu árið 2016 eftir 12 ára samband en aðeins tveggja ára hjónaband. Fyrrverandi hjónin hafa staðið í harðri forræðisdeilu, en Jolie hefur í dag forræði yfir börnunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert