Edward Cullen orðinn faðir

Robert Pattinson og Suki Waterhouse.
Robert Pattinson og Suki Waterhouse. AFP

Twilight-leikarinn Robert Pattinson og kærasta hans, leikkonan Suki Waterhouse, hafa eignast sitt fyrsta barn.

Parið, sem kýs að halda sig frá sviðsljósinu, staðfesti komu barnsins þegar það sást á röltinu í Los Angeles með barnavagn. Hvorugt þeirra hefur tjáð sig um fæðinguna né frumburðinn á samfélagsmiðlum.

Pattinson og Waterhouse tilkynntu ekki formlega um óléttuna en leikkonan sást með vaxandi óléttukúlu í byrjun nóvember á síðasta ári.

Parið hefur verið saman frá árinu 2018.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert