Kvikmyndaleikarinn Anthony Quinn lést í dag á sjúkrahúsi í Boston í Bandaríkjunum, 86 ára að aldri. Quinn, sem fæddist í Mexíkó en ólst upp í fátækt í Los Angeles í Bandaríkjunum, var þekktastur fyrir leik sinn í myndinni um Grikkjann Zorba en hann hlaut Óskarsverðlaun fyrir nestan leik í aukahlutverki í myndunum Viva Zapata! og Lífsþorsta, þar sem hann lék málarann Paul Gauguin.