Afmæliskort með athugasemdum og undirskriftum starfsmanna hafa verið bönnuð hjá fyrirtækinu Alan and Thomas Ltd í Bournemouth á Bretlandi, þar sem forsvarsmenn þess segja hugsanlegt að athugasemdir um aldur starfsfólksins brjóti gegn nýjum lögum gegn aldursmismunun. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.
Julian Boughton, forstjóri fyrirtækisins, segir ákvörðunina tekna í samráði við lögfræðinga fyrirtækisins og að það muni héðan í frá sjá um að senda starfsmönnum afmæliskort fyrir hönd samstarfsmanna þeirra. Starfsmönnum fyrirtækisins er þó enn heimilt að færa samstarfsfélögum sínum kökur á afmælum þeirra.