Dómstóll í Los Angeles hefur svipt bandarísku poppsöngkonuna Britney Spears rétti til að heimsækja tvo syni sína og veitt Kevin Federline, fyrrverandi eiginmanni hennar, yfirráðarétti yfir drengjunum. Forræðismálið verður þó tekið fyrir að nýju fyrir dómi 14. janúar.
Lögreglan var kölluð að heimili Britneyjar í nótt eftir að hún neitaði að afhenda Federline drengina, sem höfðu komið í heimsókn. Söngkonan var síðar flutt á sjúkrahús.