Pitt í tilvistarkreppu

Brad Pitt
Brad Pitt Reuters

Kvikmyndaleikarinn Brad Pitt er nú sagður vera að ganga í gegn um tilvistarkreppu og m.a hafa leitað til miðla í leit sinni að svörum um lífið og tilveruna. 

„Brad er að ganga í gegn um einhvers konar miðaldra tilvistarkreppu. Hann spyr hinna stóru spurninga eins og þeirrar: Hvað vil ég gera við afgang æfi minnar,” segir ónefndur heimildarmaður bandaríska tímaritsins Star. Þá segir hann Pitt m.a. hafa leitað til miðla í því skyni að komast í samband við framliðna. 

Kvikmyndaleikkonan Angelina Jolie, sem býr með Pitt og á með honum sex börn, er sögð öll af vilja gerð til að styðja Pitt en hafa áhyggjur af áhrifum þessarar þróunar á ímynd hans. 

„Brad er að leita að handriti um slíkt en Angelina er hrædd um að reyni hann að aðlaga það meginstraumnum muni fólk halda að hann sé alveg búinn að tapa sér,” segir sami heimildarmaður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir