Kristín Þóra Jóhannsdóttir úr Fjölbrautarskóla Vesturlands sigraði í kvöld í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór í íþróttahöllinni á Akureyri. Halldór Smárason og Daði Már Guðmundsson úr Menntaskólanum á Ísafirði urðu í öðru sæti og Daníel Haukur Arnarsson úr Fjölbrautarskóla Suðurlands varð þriðji.