Á kajak fyrir útgáfutónleika

Hljómsveitin Retro Stefson er án efa ein af vinsælustu hljómsveitum Íslands í dag. Unnsteinn Manuel, söngvari hljómsveitarinnar, segir að fyrstu þrjú árin hafi enginn mætt á tónleika sveitarinnar - en staðan er svo sannarlega önnur í dag þar sem uppselt er á útgáfutónleikana í Iðnó í Reykjavík þann 5. október næstkomandi og á aukatónleika daginn eftir. 

Fréttamaður MonitorTV fékk Unnstein til þess að koma í smá viðtal á kajak, en Fræðslusetrið Klifið útvegaði kajakana í sundlauginni í Sjálandsskóla í Garðabæ, en Klifið bíður einmitt upp á allskyns námskeið fyrir fólk á öllum aldri, þar á meðal kajak námskeið.

MonitorTV fékk einnig reynda nemendur úr unglingadeild Sjálandsskóla til þess að kenna fréttamanni og Unnsteini réttu handtökin en þau tóku það fram að það er mun erfiðara að vera á kajak úti í sjó en inni í sundlaug. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Hugrún Björnsdóttir
3
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir